Neðst á síðunni finnur þú upplýsingar um hvernig er best að hafa samband við mig…
Um mig
Hæ… Og velkomin/n á síðuna mína. Ég heiti Inga. Fædd og uppalinn á Íslandi og bý þar ásamt eiginmanni mínum og kettinum okkur. Ég er einnig stjúpmamma tveggja stelpna. Þú finnur mig yfirleitt í eldhúsinu að elda eða baka. Ég fæ hugmyndir og innblástur úr matreiðslubókum, netinu, matarbloggum og þegar að ég fer út að borða.
Mér finnst líka gaman að vera úti, fara í göngutúra, ferðast, fara út að borða, horfa á bíómyndir og þætti. Að taka ljósmyndir er einnig nýtt áhugamál hjá mér og þá sérstaklega matar ljósmyndir.
Kötturinn okkar Lúsifer, nefndur eftir Lúsifer í Öskubusku…
Um A la Inga
Ég byrjaði þetta blogg í Júlí 2017. Fyrir mér er matarblogg frábær leið til þess að halda utan um og deila uppskriftum. Markmið mitt er að vera með einfaldar og góðar uppskriftir sem allir geta gert og það er mér mjög mikilvægt að skrifa allar mínar uppskriftir bæði á íslensku og ensku.
Ég er alltaf að prófa og læra eitthvað nýtt og mig hlakkar til þess að deila því hér. Vonandi finnur þú eitthvað við þitt hæfi.
Hafðu samband við mig:
Besta leiðin til þess að hafa samband við mig er annaðhvort í emaili: [email protected] eða fylla út formið hér að neðan.